Eins og kunnugt er átti Grýla allmörg börn með sambúðartröllkörlum sínum. Heimildir greina frá um það bil 100 jólasveinum og eitthvað í kringum 80 tröllabörnum að auki sem ekki töldust til jólasveina. Það hefur því verið nóg að gera á stóru heimili. Áður en flestir jólasveinarnir hættu störfum og settust endanlega á harðan stein í …