Enn er hægt að velta fyrir sér ólíkum aðferðum til að spá fyrir um veður. Ein er sú að spá í garnir sláturdýra á haustin og lesa úr þeim veðurskiptingu komandi vetrar. Þessi aðferð hefur yfir sér mikinn forneskjubrag, enda aðferðir sem auðvelt er að tengja í huganum við örlaganornirnar Urði, Verðandi og Skuld, sem …